MÓTSAGNIR
Loka mér algjörlega
upp á gátt og hendi mér fram af og upp
í skýin.
KVÖLDIÐ
Bíll. myndavél, rúðuþurrkur, selfoss, kaffi,
rok, myrkraherbergi,
rautt hús, stúdíó, hraðabanki
en þó aðalega þú.
BARBIEDÚKKUR
a)
Múlar gætu hentað ágætlega
á málverkin sem þið skapið svo
ofboðslega
á hverjum morgni.
b)
Ímynda ykkur eiginlega
hvergi, nema í blessuðum rólunum.
Eigum við að leika?
c)
Guð minn
greinilega ekki nógu-máttugur;
þær eru allt í kring.
TÖLUR
Einn tveir þrír
fjórir fimm sex sjö átta níu tíu
ellefu tólf þrettán fjórtán
fimmtán.
Vil þig.
Nítján
næstum því tuttugu.
RAMMI: INNIHALD
Á að giska er þetta orginal mynd.
LJÓÐ Á ÚTLENSKU
Sometime.
Me will.
Love. Fish. Fish
& love.
Beat. (en).
MINNING
Manstu kvöldið þegar þú náðir í mig
og við gengum að vitanum.
Við vorum stundum jafningjar.
FIMMTÍU PRÓSENT
Sérðu ljósið þarna í gluggunum?
Já;
oftast er það samt slökkt.
ROKELDSPÝTA
Stóðum í sturtunni
þangað til
ég fór niður á þig.
Það sást í tennurnar á þér
á meðan
ég spilaði á þig
í gegnum litla hljóðfærið þitt.
DAGDRAUMUR
12:51
Horfi á þau
með forskrúfuð
augun.
12:52
Dreymi um sterka raflostinn.
15:09
Missi hjartsláttinn.
Í BÁÐAR ÁTTIR
Langar svo stundum
að vita hvað klukkan er. Langar svo stundum að borða þig.
NÆRBUXUR
Þú hefur beðið
eftir henni í þrjátíu og fjórar
mínútur.
PARA NOJA
Langar svo til
að finna það aftur
með vörunum
og hvísla að þér
með andardrættinum.
LÚS
Kerfisbundin niðurröskun
og trúin á betri heima
gerði mig að sorglegri lús.
SPEGILL
Sit á stól á móti mér
og hlusta á suðið
í kvöldinu
fara fram hjá mér
á fjögurhundruð og ellefu kílómetra hraða.
BAÐ
Á botninum. Gul önd fyrir ofan mig.
NÝIR SKÓR
Gekk of langt. Steig fram af. Lét þig
efast. Þrettán dagar. Langt síðan.
Nýir skór? Aldrei
aftur.
REYFARI
Gat ekki.
Þannig að sálin mín strauk; og ég tók hænuskref
út í myrkrið.
KLUKKUTÍMAR
Við komum heim klukkan 4:10. Við sofnuðum
klukkan 7:16. Við
vöknuðum klukkan
11:44. Þú fórst klukkan 12:37. Ég
sofnaði klukkan 12:39.
Ég vaknaði klukkan 18:22.
Eða eitthvað?