SMS
Hittumst,
kyssumst,
afklæðumst
og sjáum svo.
SAMFERÐA
Viltu vera samferða í allar áttir?
SKUGGASVEINN
besefi, hrókur, böllur, drengur,
flanni, fugl, fyðill, gráni,
göndull, brúsi, félagi, hörund, lunti, typpi, ponni,
lókur, jarl, tilli,
sverð, leyndarlimur, kompán, títa, pissi,
snudda, reður, völsi, snípur, möndull, sverð, tytja, riddari.
TIL WITTGENSTEINS
Einhvers staðar þarna bakvið
hlýt ég að hafa eitthvað að segja.
INNIHALD
Ég er að spá í að hætta.
Því miður. Ég
er hættur við að hætta við að hætta.
TÖLURNAR
Örugglega eitthvað í kringum áttatíu? Kannski
níutíu.
NIN COM POP
það minnir mig svo á þig. Það minnir mig
svo á þig.
STAFRÓFIÐ
p b j m f l
h ö í o r ð d k
g e ú a æ t u
þ á
n v s é i.
SÓLARUPPRÁS
Ég þarf ekkert að
vakna á morgun hvort sem er; höldum bara áfram.
BRUNNUR
Besta væri að maður myndi bara strax hálsbrotna en maður
myndi bara örugglega bara brjóta á sér löppina og liggja þarna
öskrandi og síðan myndi náttúrulega enginn heyra í
þér og þú myndir öskra úr
þér lungun vitandi að enginn myndi koma.
POEM
Vildi að ég gæti málað þig.
OFAN Á ÁLEGG
Það er erfitt að hanga með mér. Eftir að hafa
klórað mér til blóðs.
Í framan. Örugglega hundrað sinnum (ég á það til að ýkja).
SAMDRÁTTUR
Mín ást. Þín ást.
FYRIRGEFÐU
það er svo erfitt. Ímyndaðu
þér
kaktus. Í þremur myndum.
B
Á ég eitthvað að vera að leggja í hann. Frekar heaví stafur.
INNANTÓM ÁST
Ertu orðin?
JAFNVÆGI I
Tvær í einu.
JAFNVÆGI II
Og svo sígaretta.
POLOROID
Þú ert tvöþúsund.
Og svo eittþúsund og
eittþúsund
hver er þetta sem stendur þarna á milli?
KRÍSUVÍK
Eftir tvöfalda lokun undanfarið
þá leyfi ég mér að segja að ég er ánægður
með blómin og þig og
kvöldið og sjóinn.
STÆRÐFRÆÐI
1.
a) hæ
a) bæ
2.
a) hæ
a) bæ
3.
a) hæ
b) bæ
LJÓÐ UM AÐ OPNA AUGUN
Á ég að opna augun,
bara
fyrir þig?
VALKOSTIR
Í mygluðu heyinu
með ósvífna fortíð eða standandi í
briminu með fjarstýrða flugvél.
ÖRSAGA
Ég,
sem horfi á litrófið
þyrlast um á veggnum
og svo vin minn
naga
símann sinn,
hlýt að vanta eitthvað?
Annars væri ég ekki hérna.
VEGGUR
Bjóða þér út að borða?
BARBIEDÚKKURNAR
Þær eru gjörsamlega allsstaðar.